Þá er ég orðin óróleg enn á ný enda eirðarlaus með eindæmum. Nú hef ég búið á sama stað í rétt tæp 3 ár og þar með hef ég slegið metið síðan ég var krakki! Auðvitað hef ég verið að skoða fasteignasölurnar síðasta ÁRIÐ en nú virðast líkurnar frekar benda til landsflutninga svo ég þarf að sitja á mér hérna enn um sinn. Þá er bara eitt til ráða: breyta og bæta og snúa öllu á hvolf! En húsnæðið býður skal ég segja ykkur ekki upp á gasalega marga möguleika til breytinga. Ég skal samt finna upp á einhverju! Þetta er næsta pæling allaveganna:
Sófaveggurinn minn hefur legið óhreyfður, fyrst og fremst vegna valkvíða og ég næ aldrei að hugsa eina hugmynd til enda áður en önnur hefur skotið rótum. Svo er hagkvæmnin líka atriði, við verðum jú ekki hérna endalaust og ekki vil ég gera neina óhemju eða setja okkur á hausinn við það svo það verður að vera látlaust í sniðum í bili. Næsta pæling er semsagt í vinnslu og kemur inn von bráðar :)
Einu sinni heyrði ég kenningu um að rótleysi í fólki stafaði oft af miklum flutningum í barnæsku sem mér finnst frekar rökrétt en á svosem ekkert endilega við hjá mér. Skilnaðarbörn finna held ég bara alltaf meira fyrir erfileikum við að festa almennilegar “fjölskyldu” rætur þar sem þau flakka oft á milli foreldra og finna misjafnlega mikið fyrir því að eiga sinn sérstað innan fjölskyldunnar. Ég er einfaldlega frekar leiðigjörn, fæ áráttu og ástriðu fyrir hlutunum auðveldlega en það brennur jafnhratt út. Þegar að það kemur að fjölskyldurótunum þá einblíni ég á að upplifa þær með mína eigin fjölskyldu og hef fundið út þær helstu þarfir sem ég hef þar og ætla að skapa hjá mér og mínum :)
En ég er ekki ennþá komin á mitt fjölskylduheimili svo ég geri og græja sem mest úr því sem við höfum í augnablikinu. Ég hef samt verið að pæla mikið í fjölskylduhúsinu mínu og er komin með ágætismynd af því.
Hérna kemur svo draumalistinn: bloggið verður upphafið af “visionboardinu” mínu sem ég á eftir að hengja upp. Hafa ekki örugglega allir horft á/lesið The Secret??? Þegar gæinn lýsir því hvernig hann hengdi draumahúsið sitt á draumborðið og endaði ekki aðeins í fínu húsi heldur nákvæmlega ÞVÍ húsi! Kaupi það ekki alveg hrátt en máttur drauma og metnaðar er óendanlegur svo mér finnst þetta mjög skemmileg hugsun. Þú færð tæpast það sem þú vilt ef þú byrjar ekki allaveganna á því að ákveða hvað það er sem þú vilt? Basic! Þegar ég fór virkilega að spekúlera í framtíðarheimili þá var ég bara með ýmislegt á hreinu, kom vægast sagt á óvart! Hérna eru nokkurn atriði sem heilla mig:
Mig langar í hús sem er ekki of stórt og ekki of lítið... bara juuuuust right! Aaaalveg eins og Gullbrá :) (hef lúmskt gaman að því að spegla mig í þessum klassísku, enda iðulega kölluð prinsessan á bauninni, þyrnirós hefur einnig borist til tals :p)
Draumahúsin eru klárlega svona... ef við ætlum að fara alla leið :p
Eiginmaðurinn er alveg sjúkur í vötnin ;)
Ef þið munið eftir húsinu þeirra í “Overboard” (Goldie Hawn og Kurt Russel) þá fílaði eiginmaðurinn það í ræmur!! Ekta hús úti í skógi :)
ég eeeelska elska elska svona “setuglugga” sem ég komst að í dag að kallast “bay window” :p
Bókahillur upp allan vegginn, ég fíla svona “innbygðar” hillur sem falla inn í veginn!
og svo lestrarhorn!
Eldúsið í hvítri klassískri eldúsinnréttingu með viðarborði og mörgum stórum gluggum en kósí eldúsborðkrók er algjört möst ásamt gamalsdagsbúri!
Múrsteins og/eða viðarklædda veggi hér og þar. Arinn er alveg nauðsynlegur líka :)
Allt heila klabbið í garðinn, trjáhúsið, hengirúmin, hundakofinn... verönd, pallur... grænmetisgarður, gróðurhús o.s.frv o.s.frv. :)
Drauma drauma væri svo pláss fyrir vinnustofu, teikniborð, trönur, tölvuaðstaða.... tala nú ekki um æfingaskúr fyrir Mumma!
Held að það sé alveg augljóst að þetta heimili er ekki í boði á Íslandi hehe


















Engin ummæli:
Skrifa ummæli