...fjölskyldan mín eftir sérstakri uppskrift... móðurhlutverkið og barneignir með fjölbreyttu sniði...staðgöngumæðrun...ættleiðing og fósturbörn ásamt ófrjósemi og öllu því sem tilheyrir
mánudagur, 16. desember 2013
Nýr titill á næsta ári?
Nýjustu fréttir af barneignarmálum því þetta blogg er jú farið að snúast alfarið um aaaaaalls konar barneignar- og fjölskyldumunstur :)
Nú liggur umsókn um forsamþykki til erl. ættl. hjá barnavernd og við eigum von á heimsókn frá félagsfulltrúa að gera allsherjar úttekt á okkur, heimili og aðstæðum. Nú fer ég að detta í magasár eftir vangaveltur síðustu mánaða um þetta blessaða forsamþykki enda upp og ofan hvernig viðmið þau eru að nota í hinu og þessu. Magasárið er aðallega komið af því að ég þarf alltaf að sjá nokkur skref áfram og það er afar varasamt að fara hella okkur í 1-2mill skuld á einu ári því ekki söfnum við svo miklu á einu ári og að bíða með umsóknina finnst mér ekki líklegt hehe
Svo lá leið mín um daginn með konu sem er fósturforeldri og mér fannst mjög áhugavert að heyra um það allt saman, svo mikið að það fór ekki úr huganum næstu daga á eftir. Þá minntist ég á þetta samtal við Mumma og eiginmanninum mínum tókst enn og aftur að slá mig út af laginu með því að segja hiklaust: eigum við ekki bara gera þetta?
Ég hef haft varann á öllu sem tengist ísl. ættl (líka af því þær eru fátíðar) og kerfinu hérna á Íslandi m.a. vegna þess hvað þetta er lítið land. Reynslan mín af því er samt aðeins sem krakki þegar nokkur skólasystkini voru í þessum pakka. Vonandi er kerfið mun betra í dag. Ég hefði samt ekki getað hugsað mér þennan kost fyrir nokkrum mánuðum. Það vakti nú einhverjar spurningar hjá mér hvort að við værum farin að örvænta eitthvað eftir fleiri börnum í fjölskylduna og þess vegna opnari fyrir þessu. En það held ég samt ekki að sé málið. Eftir að hafa farið í gegnum allt sem fylgir ættl.ferlinu, að viðbættu eggjaferlinu í haust, staðgöngumæðrun og í raun hvers konar barnaeignarferli, þá held ég að við séum bara komin langt út fyrir þægindarammann. Núna er líka fókusinn ekki á hvað viljum eða að við viljum barn heldur á börnin sjálf og það sem þau þurfa, þá urðu hlutirnir allt í einu mun skýrari og einfaldari. Mummi kom mér meira segja enn frekar á óvart með því að stinga upp á að við tækjum einnig við í tímabundnu fóstri ekki aðeins varanlegu eins og við mundum helst stefna að.
Nú erum við tæplega ríkasta fólkið eða mesta plássið -í raun ekkert pláss hehe en við höfum allt til að búa barni öruggan stað -við reddum öllu hinu :)
Við sjáum til hvað félagsfulltrúinn hefur að segja um þetta og tökum mið af því varðandi forsamþykkið, hvort að við höldum því áfram samhliða og leggjum síðan umsóknina á smá bið eða hoppum beint inn í hitt ferlið sem er merkilega líkt. Þá sitjum við annað námskeið sem hefst í febrúar og svo er bara að sjá hvað gerist. Símtölin koma svotil fyrirvaralaust svo um að gera vera tilbúin og ýmsar breytingar á döfinni hérna á heimilinu til að tryggja hámarksnýtingu á plássinu. Við ætlum ekki að fara í stærra strax, erum frekar hvekkt við að fara í íbúðarkaup á þessu blessaða landi enda allt ennþá í lausu lofti svo við höldum okkur hér í bili. Enda eins og vitur kona sagði við mig um daginn... er það nokkuð verra að búa aðeins þéttar með fjölskylduna, frekar en að allir endi í sitthvoru horninu :p
Við erum allaveganna orðin mjög spennt fyrir næsta ári og ansi margt í vinnslu hjá okkur báðum ásamt fjölskyldunni. Áhyggjurnar hurfu á stundinni með þessari ákvörðun og bara tilhlökkun eftir, nákvæmlega eins og það á að vera. Ættleiðingin er samt ennþá í bígerð enda mjög erfitt að loka dyrunum á hana en við sjáum til hvernig næsta ár spilast út og höldum áfram útfrá því.
Nú halda margir að við séum alveg búin að tapa okkur en mun fleirum finnst þetta frábært og sjálfsagt og sá stuðningur er ómetanlegur!
Gleðileg Jól :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

