Skipulagðar, skynsamar manneskjur hefðu klárlega byrjað á ó svo mikilvæga verkefni fyrir viðtal hjá LHÍ! En ég? Stundum skynsöm, einstaka sinnum skipulögð, en nei. Í staðinn melti ég verkefnið, svo melti ég það aðeins meira, svo obsessaði ég í smástund, svo fór ég í nokkra rússíbana stresshnúta... svo kom bara blankó bíííííb í smátíma. Og þetta gerðist auðvitað aðeins í höfðinu á mér að öllum óvitandi svo strákarnir mínir vita ekki alveg hvað þeir eiga gera við mig. Oftast ákveða þeir að flýja alveg út af veginum eða vera alveg ofan í mér... það var sitt lítið af hvoru þessa helgina :)
En hvað GERÐI í um helgina? jú ég fór með ó svo EKKI grænu þumlana mína í eldús-pottaplöntu brask. Ég er með óbilandi þrjósku þegar kemur að plöntunum því mér finnst ósköp hlýlegt að vera með stórar grænar plöntur heima hjá mér, tala nú ekki um betri loftgæði og fínheit fyrir ofnæmis- og astmasjúklinga heimilisins. Svo langar mig að hafa kryddjurtir við hendina, mér finnst það algjör lúxus. Þetta var semsagt projekt helgarinnar:
1. plastflaska
2. bómullarsnæri
3. dúkahnífur
4. mold & fræ
Þegar ekkert gengur að kveikja líf í þessum plöntum (hvað þá að halda þeim á lífi) þá er bara að prufa aaaallt! Svona lítur semsagt eldús og herbergisglugginn minn út:
Þarna eru semsagt samansafn að fræjum, kryddjurtir, blóm og grænmeti (nú hef ég raðað þessu hingað og þangað svo ég man varla hvað er hvað hehe)
Nú er bara að umpotta þessar tvær plöntur sem ég á til (þær hafa fengið "ódrepandi" titilinn á heimilinu) og svo sjá eftir 7-14 daga hvort e-ð grænt birtist upp úr pottunum!
P.S. þetta er ekki ennþá orðin þráhyggja, það er tæpt, en það er ekki alveg komið ennþá ;)




