...fjölskyldan mín eftir sérstakri uppskrift... móðurhlutverkið og barneignir með fjölbreyttu sniði...staðgöngumæðrun...ættleiðing og fósturbörn ásamt ófrjósemi og öllu því sem tilheyrir
þriðjudagur, 21. maí 2013
Plan B.
Hversu gjeðveikt hefði það verið að komast inn í LHÍ í fyrstu tilraun!
En því miður.. -en samt ekki því eftir viðtalið um daginn þá ræddum við aðeins næsta skref og ég ákvað að LHÍ væri ekki rétti staðurinn fyrir mig eins og er. Ég vil fóta mig aðeins betur í þessu öllu saman og helst mundi ég vilja fara í þetta nám erlendis, ég fíla mig bara ekki nógu vel í listabatteríinu hérna heima, ekki á meðan ég var í listfræðinni og ekki batnar það þegar í Listaháskólann er komið ;)
Það stefnir semsagt í heimavinnandi húsmóðir í næsta mánuði og næsta vetur en ég get engan veginn látið það duga (þó að möppuvinnan haldi þrotlaust áfram á meðan) svo ég ætlaði að sækja um diplómanám í Opna Háskólanum í haust í Markaðsfræði og almannatengslum EN ég er ekki viss um að þessi braut sé kennd þetta árið! Gat verið! Er ennþá að grennslast fyrir um það en á meðan ég var að því fór ég að leita aðeins víðar og rakst á svona líka fín námskeið hjá Nýja tölvu og viðskiptaskólanum. Þar er krefjandi námskeið í grafískri hönnun sem byggir á auglýsingatækni og einnig ýmisskonar námskeið í markaðsfræði, rekstri og sölumennsku. Þetta hljómar eins og sniðið fyrir mig í augnablikinu svo ég er aðeins og grennslast fyrir um það líka. Þarna ætti ég að geta komið undir mig fótunum í hönnun og auglýsingagerð og komist með tærnar inn á stofu/fyrirtæki sem snýr meira að hönnun :)
Næsta dagskrá er semsagt eftirfarandi:
1. Skrá mig á námskeið / Sækja um í Opna Háskólanum
2. Fara á fund með ísl. ættl og leggja inn formlega umsókn fyrir forsamþykki
3. Mummi er að setja saman þjálfunar-batterí fyrir sumarið og veitir ekki af aðstoð þar
4. Senda CV gögn út til Noregs (Mummi, ekki ég hehe) og sjá hvort e-ð gerist þar.
5. Taka heljarinar budget-plan á heimilið svo við ráðum nú við að hafa aðeins eina tekjulind OG eiga fyrir ættl. gjöldunum.
Þetta er stóra planið fyrir næstu mánuði og sjáum aðeins í framhaldinu hvernig allt raðast saman :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli