mánudagur, 13. janúar 2014

Nýtt ár - nýjar stefnur!


2014 byrjar með látum enda eftir engu að bíða :)

Ég skilaði inn umsókn á Barnaverndarstofu daginn fyrir jól og sú sem tók á móti mér þar var mjög jákvæð út í allt saman og tók sérstaklega fram að þó að fullt væri á námskeiðið í feb þá dyttu iðulega e-ir út og jafnvel þó að við biðum fram á haust þá væri oft börnum komið fyrir hjá samþykktum fósturforeldrum sem hefðu ekki setið námskeiðið o.s.frv.
En það var að losna pláss og við höfum þegar verið samþykkt af nefndinni og umsóknin á leið til barnaverndar Kópavogs sem gera loka úttekt og greinargerð. Sú sem hafði samband við mig leist svona líka vel á okkur og umsóknina að hún vildi endilega koma okkur á námskeiðið þrátt fyrir að greinagerðin lægi ekki ennþá fyrir og átti ekki von á öðru en við mundum fljúga í gegn :p (mega gaman að heyra!)

Námskeiðið er greinilega ofsalegt miðað við lýsinguna og farið vel ofan í öll helstu atriði sem betur fer svo við eigum pottþétt eftir að læra helling! Hérna er námskeiðislýsingin ef e-r hefur áhuga.

Photoshop Expert (ACE) námskeiðið er svo að byrja núna í jan, 5 vikur með alþjóðlegu prófi í lokin sem verður flott að hafa. Annars er ég með nokkrar myndvinnsluhugmyndir í vinnslu sem ég get vonandi farið að sýna bráðum og koma í umferð :) ..mögulega koma þá e-ar tekjur inn enda veitir ekki af!

Þjálfarinn minn hefur svo ákveðið að ganga í skrokk á mér nokkrum sinnum í viku og taka við almennilega í gegn sem þýðir verulega bakverki en eru vonandi á undanhaldi enda er hann að rífa og tæta upp vöðva og samgróninga og ég veit ekki hvað þarna. Svo verð ég eins NÝ úr kassanum! Eða svoleiðis :p

Þessar vikurnar fara svo í makeover á svefnherbergjum til að koma fyrir auka svefnplássum... merkilegt hvað mar getur verið útsjónarsamur í þessum málum ef nauðsyn krefur. Nú vitum við ekkert hvað við gætum átt von á í sambandi við fósturbörn, hvaða aldur eða kyn svo ég bý mig undir allt bara :)

Nú eru þó nokkrir með varann á þegar kemur að þessari nýju stefnu hjá okkur í fjölskyldumálum en það er vanalega bara þekkingarleysi þar að baki enda hágæðafólk í kringum okkur! Þá er bara um að gera að spurja! Við eigum eflaust eftir að tala af ykkur eyrun líka bara svo að þessar aðstæður okkar venjist sem fyrst. Mér fannst sjálfri þettta ómöguleg hugmynd fyrir stuttu síðan svo að ég skil vel hikið hjá mörgum en við erum mjög spennt fyrir þessu núna og tökumst á við allt sem koma skal :)

Nú verð ég öflugari í blogginu enda ágætis reynsla til að deila ;p