mánudagur, 14. október 2013

Eggheimta



Ég fór í eggheimtu síðastliðinn miðvikudagsmorgun og allt gekk mjög vel og fengust hvorki meira né minna en 16 stykki sem er vel yfir meðallagi :)

Þar með hef ég getað gefið tveimur konum/pörum og fæ e.t.v. betri upplýsingar um það hvernig gekk með uppsetningu þegar ég fer í skoðun eftir ca. 2 vikur.

Aðgerðin tók örstutta stund, frekar sársaukafullt á hægri eggjastokk en tók fljótt af, ég veit þá að biðja um meiri deyfingu NÆST hehe

Mummi kom með mér og var hjá mér allan tímann. Ég var í uppnámi fyrst eftir aðgerðina þegar við komum inn á stofu og tárinn runnu stjórnlaust í smástund, kannski uppsafnaðir hormónar eða sársaukinn við aðgerðina eða bara álagið við að vera aftur á skurðstofu, hver veit. Ég var fljót að jafna mig og eymslin líka og við gátum farið heim u.þ.b. 30-50min seinna. Aðgerðin fer greinilega misjafnlega í alla því það voru fleiri konur á stofunni í eggheimtu og öðrum aðgerðum sem voru í fínu lagi eftir hana heyrðist mér  :)
Ég fór mér hægt þann daginn og næsta en ristillinn var líka búinn að vera angra mig svo eymslin í neðri kvið voru hundleiðinleg en ekkert til að vesenast yfir. Ég fékk sýklalyf fram yfir helgi og held áfram að taka nefúðalyfin í smátíma á meðan hormónarnir eru að jafan sig. Mikið verð ég samt glöð þegar ég losna við öll þessi lyf úr líkamanum! Mér líður illa af því að taka íbúfen svo mig er alveg farið að klígja í líkamann undan þessum lyfjapakka.

Ég er samt rosalega ánægð með afraksturinn og himinlifandi yfir að hafa loksins gert þetta enda hugsað um þetta í mörg ár :)

Stutt yfirlit yfir þetta helsta fyrir þá sem eru e-ð að hugsa út í þetta:


  1. Ég hafði samband við Art Medica með fyrirspurn í maí og var svarað um hæl
  2. Fyllti út meðfylgjandi spurningarlista og fékk í kjölfarið (strax) viðtalstíma um leið.
  3. Viðtalstími og skoðun með strokusýnum
  4. Fór með beiðni um blóðprufu á heilsugæsluna í glæsibæ 
  5. Art Medica hafði samband eftir að hafa fengið góðar niðurstöður úr öllu og við ákváðum hentugan tíma til að hefja ferlið.
  6. Ég byrjaði á getnaðarvarnarpillunni (23. 8.) 2 vikum fyrr (vegna þess að ég fer ekki á blæðingar) til þess að staðsetja mig í tíðarhring og til þess að para mig saman við eggþega
  7. Næst komu lyf í nefúðaformi (6. 9.)hvora nös x3 á dag, sem er yfir allt tímabilið en skammturinn minnkar þegar övunarlyfin hefjast
  8. Næst var sónar (25. 9.)til þess að athuga stöðuna og ákveðið skammtinn fyrir örvunarlyfin (í sprautupenna)
  9. Ég tók örvunarlyf (26. 9.)  í 11 daga og fór 3x í sónar með nokkra daga millibili til að taka stöðuna og hagræða skammtinum
  10. Síðasta lyfið (einnig í sprautupenna) tók ég svo að kvöldi 11 dags (7. 10.) til að búa undir eggheimtuna (9. 10.).
  11. Eftir eggheimtuna eru sýklalyf 2x á dag í 5 daga
  12. Nefúðinn er áframm í 2 vikur á eftir (eða þar til blæðingar hefjast) þá er eftirskoðunin 

"Óþægindagreiðslan" var svo kom inn á reikning hjá mér daginn eftir eggheimtuna. Það er greitt 75þús fyrir að gefa einni konu en 100þús fyrir tvær sem eru þá yfir 10 egg. Ég hefði gert þetta án greiðslunnar en auðvitað kemur hún sér vel í dag með fyrirhugaðan ættleiðingakostnað svo ég er mjög þakklát fyrir það :)


Þetta er alls ekki fyrir allar enda tekur hormónameðferðin á en aðeins í 4 - 6 vikur og þetta er svakalega stór gjöf að gefa og ýmsar tilfinningar sem spila inn í það en fyrir þær sem gætu hugsað sér það þá mæli ég endilega með að gera þetta.

Svo sakar ekki að eiga frábærann eiginmann og son sem tóku heilshugar undir þetta og þótti þetta allt saman sjálfsagt :)


Engin ummæli:

Skrifa ummæli