fimmtudagur, 26. september 2013

Á fullu í hormónum!


Í gær fór ég í sónar hjá ART Medica til að athuga hvernig allt gengur og merkilegt nokk þá er allt eins og það á að vera :)
Alltaf pínu fyndið að hitta svona lækna því þeir verða svo spenntir yfir fæðingarsögunni, líður dáldið eins og sjaldséðu furðudýri sem þeir eru afar forvitnir um hehe.
Læknirinn lét mig hafa skammtastærðirnar fyrir næsta lyf -örvunarlyfið sem er í sprautuformi. Nálin var dáldið stærri en ég var búin að sjá hana fyrir mér!

Fyrsti skammturinn var svo í morgun... ég var rosa hugrökk... peppaði mig þvílíkt upp... svo fann ég ekki einu sinni fyrir nálinni hehe! Minnsta mál í heimi! Daði fær klárlega að hjálpa mér við næstu sprautur því greyið er með gríðarlega nála-fóbíu, vonandi hjálpar þetta því eitthvað :)
Aukaverkanir af þessu lyfi virðast ekki vera miklar nema að það verði oförvun en það er helst ógleði og/eða uppköst, kviðverkir og höfuðverkir t.d. Ég verð einnig kannski dálítið útþanin á kviðnum þegar eggbúskapurinn stækkar ;)
Nefúðinn heldur svo áfram alveg framyfir eggheimtuna en skammturinn minnkar um helming. Ég hef verið heldur slöpp undanfarið og fæ einstöku hitaköst en þau vara stutt. Allt í allt þá eru aukaverkanirnar ekkert óviðráðanlegar, þreytt og sveitt á köflum og dálítið hæg um mig en ekkert sem truflar mig og mína að ráði. 
Ég fékk smá sjokk þegar ég labbaði inn á ART Medica í gærmorgun en biðstofan var pökkuð! Þar voru mörg pör í einhvers konar skoðunum og/eða meðferðum og yfir sumum óskapleg sorg eða hreinlega andleg þreyta. Mér verður oft hugsað til þess að margar konur fara ítrekað í gegnum þessa meðferð, sem fer oft verr í þær líklega vegna aukinnar streitu í þessum aðstæðum, ásamt uppsetningunni, jafnvel þungun og fósturláti. Aftur og aftur, ár eftir ár! Þvílíkur styrkur sem þessar konur og menn þeirra hafa! 

Næsti sónar er svo á mánudaginn og þá kemur í ljós hvernig örvunin gengur og hvernig skammtastærðunum verður háttað í framhaldi. Það þarf að fylgjast vel með hvenær ég er tilbúin til þess að áætla eggheimtudaginn. Krossið bara putta að það náist heill hellingur af úbereggjum :)

Xoxo
hormónasprengjan :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli