...fjölskyldan mín eftir sérstakri uppskrift... móðurhlutverkið og barneignir með fjölbreyttu sniði...staðgöngumæðrun...ættleiðing og fósturbörn ásamt ófrjósemi og öllu því sem tilheyrir
þriðjudagur, 18. júní 2013
Sérþarfalistinn
Við áttum fund með Gesti Pálssyni síðasta föstudag til að fara yfir sérþarfalistann fyrir ættleiðinguna.
Ástæðan fyrir því að við ákváðum að fara á sérþarfalistann var ekki einungis vegna þess að hann flýtir töluvert fyrir ferlinu heldur einnig af því að mörg börn á þessum lista þurfa aðstoð til að eignast eðlilegt líf sem að við getum hæglega veitt hérna á Íslandi.
Við ákváðum með okkur að velja heldur þröngt á listanum þar sem við eigum jú barn fyrir til að taka tillit til og það er mikill lúxus að hafa Gest barnalækni við hendina til að leiða okkur í gegnum hann. Þessi læknir hefur tekið á móti öllum ættleiddum börnum á Íslandi í tugi ára og veit upp á hár hverju á að mæla með og hvað hefur reynst vel. Þar merkti hann aðallega við tvö atriði sem hann hefur mikla og góða reynslu af:
í fyrsta lagi fjögur atriði hjartavandamála sem þurfa minniháttar aðgerðir
í öðru lagi skarð í vör og/eða klofinn mjúki gómurinn
þessi atriði eru auðveldlega löguð og há börnunum ekkert seinna meir.
Nú sýnist mér við vera nokkuð viss um að senda umsókn til Kína en þar er mjög sérstakur háttur á ferlinu. Þar eru börn ekki pöruð saman við foreldra heldur sendur út listi reglulega yfir netið sem aðili frá öllum þjóðum vaktar og því eins konar kapphlaup þegar listinn kemur út að finna börn eftir ákveðnum atriðum sem fylgja hverri umsókn.
Þess vegna þurfum við þá að þrengja okkar umsókn niður í smáatri, 4-5 atriði sem viðkomandi hefur við hendina til að líta eftir á listanum. Þannig að við þurfum að segja til um kynið, sem að við höfum aldrei haft neina skoðun á en ef ég þarf að velja þá mundi ég heldur vilja stúlkubarn ef við við ættleiðum frá Kína. Mumma er alveg sama svo hann er bara góður hehe. Við eigum að tilgreina aldur, helst í hvaða mánuði barnið á að vera fætt!!! og svo koma atriðin af sérþarfalistanum en við viljum einblína á þau atriði sem Gestur mælti með fyrir hjartað (þarna er ekki verra að móðurfjölskyldan er með heimasímann hjá fremsta hjartalækninum en yngri bróðurinn fæddist með hjartagalla) svo vil ég heldur hafa aðeins skarð í vör. Við getum valið mjúka góminn en harði góðurinn getur verið vandasamur svo ég vil ekki eiga hættu á að fá loks úthlutað barni og þurfa að neita. Þá vil ég heldur bara taka fram skarð í vör og sleppa alveg möguleikanum á gómnum.
Núna skilum við semsagt pappírum inn fyrir forsamþykki ásamt sérþarfalistanum og óskum eftir allri heimsóknarmeðferðinni sem eru um fimm skipti samkvæmt Kína-kröfunum. Við eigum eflaust eftir að þurfa ýta töluvert á eftir þeim sjá sýslumanni og barnaverndarnefnd svona yfir sumartímann en vonandi klárast allt ferlið í lok sumars - og að við fáum samþykkt að sjálfsögðu en núna er ég byrja kvíðaköstin fyrir því að þeir fari að fetta fingur út í þetta eða hittt :/
Ef að allt gengur að óskum þá megum við eiga von á því að fara í ferðalag til Kína á næsta ári og koma þeim mun ríkari heim :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Æði! Svo gaman að fylgjast með þessu.
SvaraEyðaGestur er algjör snillingur.
-Hildur