...fjölskyldan mín eftir sérstakri uppskrift... móðurhlutverkið og barneignir með fjölbreyttu sniði...staðgöngumæðrun...ættleiðing og fósturbörn ásamt ófrjósemi og öllu því sem tilheyrir
mánudagur, 7. október 2013
Lokaspretturinn
Þá eru komnar 4 vikur af hormónarassíu og komið að þessu. Samkvæmt sónarnum í morgun þá er allt að bresta á og lítur vel út svo að eggheimtan hefur verið staðfest á miðvikudaginn :)
Þetta var fjórði sónarinn og ég hef verið á örvunalyfjunum (sprautunum) í 11 daga núna. Ég hef lítið fundið fyrir þeim lyfjum nema kannski þreytu sem ég gef bara undan og tek mér mína blunda þegar þörf er á svo að þetta hefur gengið fínt. Það hefur verið að aukast þrýstingurinn í neðri kviðnum eftir því sem eggbúin stækka svo ég er með bumbutilfinninguna og dálítið þrútin en svo kom svaka bomba í brjóstin um helgina svo ég fékk svakalega meðgöngutilfinningu sem var frekar öfugsnúið þar sem ég er faktískt að bíða eftir barni en ekki "þessu" barni og er ekki ólétt og get ekki verið það o.s.frv. o.s.frv. frekar spes staða :/
Í kvöld er svokallaða "miðnætursprautan" sem er mikilvægt að taka á hárnákvæmum tíma upp á eggheimtuna og svo er bara að krossa putta að það náist nógu mörg egg og góð egg svo að ég geti séð tveimur konum fyrir séns á barni :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli