mánudagur, 24. febrúar 2014

Heimavinna


Helgin var ósköp róleg hjá barnlausu hjónunum eftir skemmtilegt sprell á föstudagskvöldinu með vinapari. Laugardaginn stalst ég í myndvinnsluna og klárði eina sem var í vinnslu en sunnudagurinn fór svo í heimavinnuna :p



Við sátum við heimavinnubækurnar okkar að svara heilum helling af spurningum fyrir fórsturnámskeiðið næstkomandi helgi. Þar að auki er þykkt og fínt kennsluhefti sem ég hef verið að rúlla yfir í rólegheitunum. Með þeim fengum við svo útprentaðan pakka af lögum og reglugerðum varðandi fósturmálin og annann léttari með. Ég pantaði svo nokkrar bækur sem voru að koma í  vikunni sem verða örugglega mjög hjálplegar að hafa við hendina og fjalla um öll helstu atriðin. Allt þetta efni vekur gríðarlega umhugsun um allar hliðar málsins og alveg klárt að þetta verður mikil áskorun (í bestu tilfellum) sem mér fannst ég vera nokkuð meðvituð um en enn er ég alltaf að rekast á nýja vinkla sem þarf að melta og mynda sér skoðun og stefnu með. Nú eru margir mjög undrandi yfir þessu vali hjá okkur og áhuga á því og þá sérstaklega að taka tímabundið fóstur -bara til þess eins að láta barnið frá okkur- sem er skiljanlegt en um að gera að spurja að vild ;)
Við fengum heimsókn frá félagsráðgjafanum okkar í vikunni og henni virtist lítast ágætlega á allt saman en gaf þó ekki mikið uppi. Hún er áhugasöm um strákinn okkar og hvernig við tæklum uppeldið á honum enda rokkar hann hingað og þangað um þennan hefðbundna ramma. Við hittum hana einu sinni enn og svo býst ég við að greinagerðin um okkur taki við og þá erum við komin á skrá! Því næst klárum við námskeiðið í næsta mánuði og fáum þá leiðbeinendur í heimsókn að meta okkur enn frekar og þau gefa einhvers konar umsögn um okkur sem fylgir okkur þá í kerfinu. Viðmótið hjá öllum hefur verið mjög gott og vinsamlegt og allt gengið hratt fyrir sig. Þetta er vandvirkt fólk og sýnist mér á öllu hingað til að þau haldi mjög vel utan um fósturforeldra sem fá allan þann stuðning sem þeir gætu mögulega þurft bæði í tilfellum barnanna og persónulega.

En þú þarf ég að halda áfram spurningalistanum mínum.... öllum 50+ bls... ég er bara komin á bls 25 :p

Engin ummæli:

Skrifa ummæli