Sumarið hefur farið í miklar pælingar og töluverða "leit" og ég er loksins aðeins að lenda að réttum stað og ná fókus aftur en þá fer allt á fullt aftur! Ég er búin að velta ýmsum hlutum upp og fékk smá aðstoð en er loksins að sjá hlutina á réttan hátt og hvað ég á að vera að einbeita mér að :)
Ættleiðingin hefur staðið í stað yfir júlí enda allir í sumarleyfum, þ.á.m. skrifstofur íslensk ættleiðingar. Við ákváðum að fá nokkur meðmælabréf til viðbótar sem mínar elsku Edda Hrund og Addý skrifuðu upp á núll einni! Öflug viðbót við bréfin þegar komin frá Jóa og Örnu, Sigga og Hildi, Gauja, mömmu, tengdaforeldrum og Söru mágkonu. Auk þess óskuðum við eftir "meðmælum" frá Hauki leigusalanum okkar góða, bara til að staðfesta að við séum í öruggu langtímahúsnæði þrátt fyrir að eiga það ekki sjálf en það getur verið atriði þegar kemur að forsamþykkinu. Honum þótti það auðvitað sjálfssagt og við erum búin að skrifa undir nýjan samning og svo er bara að sjá til. Einnig óskuðum við eftir skattskýrslun síðastliðinna tveggja ára eins og skylt er fyrir forsamþykkið en til viðbótar leggjum við inn staðhæfingu frá enduskoðandanum varðandi vaxandi tekjur það sem er af árinu 2013 (skattskýrslan sýnir í raun ekki nægilega fram á það). Þar sem erum við búin að gera allt sem við getum eins og staðan er í dag og nú er bara að krossa putta að við fáum að fara í gegnum heimsóknarferlið líka og það sé verið að líta á heildarmyndina sem erum við en ekki aðeins stakar tölur á blaði. Nú er ég að gera ráð fyrir öllum mögulegum útkomum og kannski er algjör óþarfi að stressa sig en við vildum heldur bæta í pakkann og reyna komast framfyrir öll möguleg álitaefni, sakar ekki ;)
Vonandi geta þau gefið okkur einhverja hugmyndir hjá íslenskri ættleiðingu þegar við fundum aftur með þeim en mér skilst að það sé lítið hægt að segja fyrir um þetta ferli og allur gangur á þessu. Forsamþykkið getur síðan verið langan tíma að fara í gegn en vonandi kemst þetta allt á hreint með haustinu (krossa putta) eða í lok árs, allt lengra en það verð ég örugglega búin að reita úr mér hárið :p
Mummi verður á námskeiði helgina og svo verðum við hjá fjölskyldunni út vikuna að versla ogg dúlla okkur saman. Ég þarf semsagt að læra VERSLA! Ekki mín sérgrein en eins gott að fara all out svo ég verði bara stikk-free í vetur með fjölskylduna og klára jólamálin. Ahh það verður yndislegt! :)
September verður tileinkaður eggja-prógramminu en vonandi verð ég ekki alveg í ruglinu og get nýtt mánuðinn í grafík-verkefni. Október er svo photoshop-námskeið í 5 vikur... þetta ár verður búið áður en ég veit af!
Ítarlegri pistill kemur síðar, grafík-verkefni og hugmyndir sem ég er að sýsla með, efni og bækur sem ég hef verið að skoða - efni sem mörgum finnst eflaust áhugavert, öðrum finnst líklega heimskulegt.. sitt sýnist hverjum! :)


Lesið og bara verið að kvitta fyrir sig. kv. Anna Bára
SvaraEyða