...fjölskyldan mín eftir sérstakri uppskrift... móðurhlutverkið og barneignir með fjölbreyttu sniði...staðgöngumæðrun...ættleiðing og fósturbörn ásamt ófrjósemi og öllu því sem tilheyrir
fimmtudagur, 27. júní 2013
Játning vikunnar!
Á barmi taugaáfalls í vikunni fór ég á stúfana og fann mér sálfræðing! Ættleiðingin kom verulega aftan að mér þegar ég fór að grennslast meira fyrir um forsamþykkið og asnaskapinn sem fylgir oft þessum skriffinsku-aðilum sem veita það og í svartsýninni varð sá möguleiki mjög raunverulegur fyrir mér að við yrðum ekki samþykkt! Þarna varð mér líka mikið á því hausinn höndlar ýmsar hindranir en hjartað laumaðist þarna með yfir síðustu vikur og þ.a.l. komst kvíðinn beina leið að. Barnið er orðið mjög raunverulegt og tilfinningin svipuð og fengi ég að vita ég ætti hættu á fósturláti á meðgöngu!
Þarna eru greinilega mörg og flókin aðtriði í gangi sem aðeins fólk sem hefur gengið í gegnum ófrjósemi og barneignarerfileika getur ímyndað sér og ég hef ekki fengist við almennilega hingað til. Enda hef ég einbeitt mér að öllum hinum vandamálunum og látið barneignarmálin í "framtíðar-flokkinn" og geymt hann bara þar á meðan.
Ég fann nú eina klára sem virðist sniðin fyrir mig og sérhæfir sig mikið t.d. í ófrjósemis-málum. Þegar hún bað um upplýsingar um hvað ég þyrfti helst aðstoð við þá varð upptalningin á atriðum síðustu ára heeeeldur löng :/
legmissir: ófrjósemi/barneignarerfileikar - áfallastreituröskun - maníu/þynglyndi - kvíðaröskun - tilfinningaleg einangrun og samskiptaerfileikar - tengslamyndun - líkamlegir erfileikar eftir fæðingu í stoðkerfi (bólgur og hryggskekkju) - barn með sérþarfir, ekki alvarlegar en þó krefjandi..... o.s.frv.
Margt af þessu hef ég fengist við sjálf og er á góðu róli svona miðað við aðstæður. En þegar nær dregur að ættleiðingunni og við förum að kafa betur ofan í hluti sem við þurfum að vera með á hreinu enda er að ættleiða barn af stofnun allt, allt annað en einfaldlega að eignast barn, þá verður alltaf skýrara hversu krefjandi þetta gæti verið og auðvitað skiptir öllu að við séum upp á okkar besta, sérstaklega ÉG!
Til þess að missa mig ekki alveg í neikvæðum rússíbana og vitandi það að ég þarf að finna lausnir á hlutunum til þess að líða betur, grennslaðist ég fyrir um eitt og annað og við erum komin með plan sem róaði mig aðeins. Við þurfum einfaldlega að púðra umsóknina aðeins með viðbótargögnum og bæta það sem er í okkar valdi að bæta (heimilið - meðmæli og slíkt) restin verður bara að koma í ljós :)
Jákvæðnin er allaveganna komin aftur og hún fleytir manni langa leið, pollýanna stoppaði aðeins við og vann sína töfra og svo sjá örlögin um restina en ég treysti alltaf mikið á að það sem verður er hluti af einhverju stærra sem liggur fyrir okkur.
Munið bara að vera jákvæð og þakklát fyrir allt sem þið hafið í lífinu -það gerir kraftaverk ! :)
:*
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli