fimmtudagur, 5. september 2013

Nýjustu fréttir!



Update #1

Umsóknin fyrir forsamþykki á ættleiðingu erlendis frá er nú komin formlega í gang (þ.e. komin í staflann hjá sýslumanni) Nú er bara að vona að hún gangi hratt í gegn, að heimsóknirnar hefjist sem fyrst og að við fáum endanlega svar af eða á fyrir jól! Ef við fáum neitun þá er bara að meta aðstæðurnar í framhaldi af því (fer mikið eftir því á hvaða forsendum höfnunin er) ef við fáum samþykki þá er bara að hendast beint í að setja saman umsókn og senda af stað til Kína :)

Update #2

Eggjagjöfin er komin á áætlun og ég byrjaði á pillunni þegar við vorum úti. Ég fer ekki á blæðingar og þess vegna þarf ég að byrja á að taka pilluna til þess að staðsetja mig í tíðahringnum og para saman við eggþegana (sem verða vonandi tvær ef að æskilegur fjöldi eggja næst). Á morgun byrja ég svo á fyrsta lyfinu og svo koll af kolli út sept en eggheimtan er framkvæmd næstu mánaðarmót ef allt gengur upp :)

...
...U.S.A. gekk vel, svo vel að nú er Mummi búinn að sannfæra mig um að við eigum miklu frekar að flytja þangað út en til Noregs! Nú gistum við mestmegnis af ferðinni á Long Island hjá fjölskyldunni hans í "the suburbs" og ég fylgdist vel með hvort ég sæi ekki desperate housewifes club á einhverju horninu...  Kannski að mar endi bara með hvítu girðinguna og minivan  :p

Nýja djobbið er allaveganna geggjað! Þvílíkur munur á heimilislífinu miðað við síðasta vetur með allt á handahlaupunum. Nú er morguninn tekinn snemma, ELDAÐUR morgunmatur á línuna þar sem allir sitja Í EINU við borðið, í rólegheitunum og lagt tímanlega af stað. Ég skutla strákunum á sinn stað og er mætt á æfingu FYRIR 8! Heimavinnan afgreidd í ró yfir daginn en ekki á hlaupum á milli kvöldmats, íþrótta og háttatíma... næði og orka á kvöldin fyrir soninn og eiginmanninn.. ljúft líf! Klárlega þess virði þó að launaseðillinn sé ekki stór.

"auka" djobbið er svo í vinnslu, þ.e. nafn, lógó, lén, FB page og vonandi heimasíða/vefverslun með tímanum. Svo kemur fun-stuffið :)
Photoshoppið fær alla athyglina samt næstu vikurnar svo að annað kemst víst ekkert á fullt swing fyrr en kannski á nýja árinu, sjáum við hvað ég verð dugleg.

:*

Engin ummæli:

Skrifa ummæli