mánudagur, 23. september 2013

Sófaveggurinn

Ég kláraði loks sófavegginn minn um daginn eftir miklar pælingar hvað ég ætti að setja á hann og búin að dúlla við ýmsar "skissu" uppsetningar í tölvunni.
Þar sem að við eigum svo fínar (og margar) myndir frá brúpkaupinu þá var erfitt að velja hvernig ég gæti sett þær (ódýrt og einfalt) upp.
Ég átti til eina litla myndahillu úr IKEA svo ég ákvað að kaupa tvær stærri til viðbótar. Ég átti líka nokkra gamla svarta myndaramma í vissum stærðum og keypti samsvarandi í rúmfatalagernum til viðbótar. Spegilinn fékk ég líka í IKEA.
                                     
Ég strípaði vegginn, kíttaði og renndi einni umferð yfir af hvíti málningu. Svo bara mælt allt bak og fyrir og borað villt og galið (já ég sé um allt svoleiðis :p) en ég hannaði svo sjálf stenslamyndina og fékk þau til að skera hana út í límvínil niðri í Samskiptum. Það er ekki hentugasta efnið í stensla og aðeins einnota en gekk ágætlega með smá fínpússi eftir á :)
Tréð var í raun einfaldast! Ég setti málningartape á vegginn í grófum útlínum svo teiknaði ég tréð með tússi og skar það út úr tape-inu með fínlegum dúkahníf = kominn fínasti stensill. 

Nokkrar umferðir af svartri veggmálningu á rúllu og pensli. 



Lét loksins prenta út myndirnar og skellti í ramma = kósí stofa :)


Þetta tók mig eina ca. 2 daga að stússast í málningu og uppsetningu en hráefniskostnaðurinn var afar lítill, spegillinn var dýrastur eða um 6þús og myndirnar eru prentaðar í hágæða bleksprautu sem ásamt vínilinum voru á kostnaðarverði (smá sérdíll niðri í vinnu) eða um 5þús.




Engin ummæli:

Skrifa ummæli