miðvikudagur, 19. júní 2013

Hversu mikil húsfrú!


Ég eyddi meirihluta dagsins í allskonar snatt um bæinn sem er ekki frásögum færandi en ég var með kortið frá kallinum! Allt í einu fannst mér ég vera alveg ekta! hehe

Hérna eru svo verkefni sem ég setti upp á vegg í tilefni þess að vera heimavinnandi :p


Heimilis-skipulagið.
Þarna er aðeins grunnurinn prentaður (70x100cm) og settur í ramma svo skrifa ég með túss mánuði og dagsetningar og dagskránna á glerið sem þurrkast svo af. :)




Heimilis-þrifin.
Smá tékklisti (30x40cm) til að halda sér (ásamt heimilisfólkinu) við efnið. Sama dæmi, tékkað við með tússi og þurrkað jafnóðum af :)





Hérna eru svo nokkrar myndir af "gróðurhúsinu" og matjurtagarðinum enn sem komið er :)


                      
Glæru plastkassarnir með loki hafa svo reynst vel sem hitakassar á ofninum undir minnstu plönturnar


       


Ég endaði með risagarð í skólagörðunum sem ég skipti í fjóra ca 100x250cm. 

                            

Strákarnir svo síðan svona þrælspenntir fyrir skólagörðunum og rosalega duglegir við þetta :)

Ég er e-ð að ná tökunum á bakstrinum, brauð og múffur eru hérna mest borðað hehe 

             

En ekki er allt þrif, bakstur og garðyrkja sko. Mér tókst að komast í blóðbankann að gefa, ég má ekki fara þegar ég er að taka ofnæmislyf útaf Kastró og núna gras og frjó en blessað lofthreinsitækið var alveg að gera sig og fyrstu dagana var það svo öflug breyting að ég var ofnæmislaus og 4 daga svo ég dreif mig af stað. Ég hef samt ekki ennþá gefið sem nemur kannski helming af þeirri skuld sem ég á inni enda held ég áfram að gefa hvort eð er. Ég bíð spennt eftir þessum hressileika sem fólk lýsir um og eftir 10 gjöf, þetta er ákveðin hreinsun reglulega hehe
Ég prufaði líka að skjóta boga, nýjasta dellan á heimilinu. Ég er líka á yoganámskeiði og fór á stutt námskeið í ljósmyndun og næ meira segja að lesa ca eina bók á viku!!! Endalaus snilld! Þetta allt ásamt gauraskapnum í Daða og félögum og snúa heimilinu á hvolf fyrir fyrirhugaðar heimsóknir frá barnaverndarnefnd/ættl. forsamþykki. 
Nú fer samt að koma að smá vinnu hérna heima líka sem mig hlakkar endalaust til að hella mér í (meir um það seinna)

Annars er ég alveg kolfallin fyrir lítilli stúlkudömu í Kína með veikt hjarta og get ekki beðið eftir að fara út!! :D




1 ummæli:

  1. Vá hvað þú ert dugleg! Tekur nýja hlutverkið greinilega alveglega :)

    -Hildur



    SvaraEyða