þriðjudagur, 4. júní 2013

Ættleiðingin = Stopp - Play - FAST forward

Stórar ákvarðanir liggja á fjölskyldunni eftir fund með ísl. ættl. í gærmorgun. Ættleiðingin gengur ekki í gegn ef að við flytjumst til Noregs og því aðeins tvennt í stöðunni:

Slaufa öllu hérna heima og byrja ferlið að nýju í Noregi (þurfum að hafa búið þar í (líklega) u.þ.b. ár áður en við gætum hafið ferlið.
Eða bíða með Noreg þar til ættleiðingin gengur í gegn. Þar lendum við í sjálfheldu því það er erfitt að safna upp í ættleiðingakostnaðinn hérna á Íslandi, hvað þá að fara skipta um húsnæði eða kaupa. Það liggur beinast fyrir að fara eins hraða leið í gegnum ferlið og mögulegt er en þá eru sömu vandræði með hversu mikið er hægt að safna upp á skömmum tíma. Hrikalegt að barnamál þurfi að snúast um peninga! En svona er lífið í dag.

Ég vil ekki fyrir neina muni bíða með ferlið og þvísíður fara í gegnum það í Noregi. Við erum ekki einu sinni flutt þangað og vitum ekkert hvernig verður með aðstæður þar. Svo að við ætlum að kýla ferlið í gang hérna heima og þá eru komnar miklar (að vissu leyti ótímabærar en jæja) pælingar með hvert við ætlum að senda umsókn.

Löndin sem við höfum verið að íhuga eru Tékkland, Tógó og nú að síðustu hefur Kína komið til tals. Við ætlum að fara í gegnum sérþarfalistann, sem flýtir töluvert fyrir ferlinu, þá sérstaklega í Kína. Í Tékklandi og Tógó er parað börn og kjörforeldra sem þýðir að ferlið gæti tekið 2 mánuði eða tvö ár og engin leið að segja til um það fyrirfram.
Mummi hefur alltaf verið spenntur fyrir Kína(enda fluttist þangað á tímabili) en ekki ég, það er aðeins að koma til núna og ég sé mikinn ávinning af því fyrir barnið hversu áhugasamur hann er um upprunalandið :)

En veljum við Kína þá gætu hlutirnir mögulega gerst MJÖG hratt! Styðsta tilfellið eru 48 klst á milli þess að umsókn þar úti var samþykkt og foreldrum úthlutað barni!

Við eigum eftir að setjast niður með Gesti lækni og fara vandlega yfir sérþarfalistann en við ætlum að hafa hann með í umsókninni um forsamþykkið. Skilyrðin frá Kína eru einnig ítarlegri heima-heimsóknir frá barnaverndarnefnd eða um fimm talsins sem dregur forsamþykkið e-ð aðeins en við þurfum að vera dugleg að ýta á eftir því í sumar þegar við höfum skilað öllum pappírum inn.

Annars erum við (einkum ég) bara að melta allt saman og reyna skrúfa hausinn í stellingar fyrir það sem koma skal.

:)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli