mánudagur, 3. júní 2013

Nýr titill


Þá er ég komin með nýjan starfstitil, heimavinnandi húsmóðir!



Mikið óskaplega var samt erfitt að keyra úr vinnu síðasta föstudag -þrátt fyrir að hamagangurinn þann daginn dreifði alveg huganum hehe
Yfir síðustu 10 árin þá hef ég átt erfitt með að finna mig hreinlega allstaðar NEMA hjá Samskiptum, þar byrjaði ég haustið 2010 og smellpassaði loksins einhver staðar. Komst loksins úr múrunum sem ég var komin með og var loksins ég sjálf með öllum þeim kaldhæðnis húmor glensi sem ég var búin að gleyma að væri þar til staðar. Ég lærði helling og umhverfið mjög örvandi enda komst ég loksins á skrið á síðasta ári í allskonar hugmyndum og verkefnum. Svo vel að ég átti erfitt með að láta mér starfslýsinguna nægja og vantar mun meira til að halda mér við efnið.

ÞESS VEGNA ákvað ég að hætta og einblína á að efla mig á því sviði til að komast frekar í aðeins meira krefjandi og ögrandi starf -eða háskóla, aldrei að vita. Annað eins er alveg hægt að gera með vinnu, en það er mun erfiðara og ALLIR verða ósáttir á heimilinu, been there DONE that!
Það verður allaveganna nóg að gera í námskeiðum og verkefnum á næstunni! Svo að til að svara lang-algengustu spurningunni NEI mér á ekki eftir að leiðast! hehe


Eiginmaðurinn er síðan búinn að hlaða á sig verkefnum fyrir sumarið og búinn að setja sig í stellingar sem aðalfyrirvinna heimilisins svo ég verð að hugsa um kallinn svo hann keyri sig nú ekki alveg í kaf ;)

Þessi vika byrjar allaveganna með trompi! Störtuðum vikunni með ættleiðinga.fundi (nánar um það síðar) og við Spaði stefnum á matjurtagarðana í dag og út vikuna að gera þá og græja fyrir sumarið :)
Svo er ljósmyndanámskeið hjá Gassa á miðvikudaginn svo að næstu þrír dagar fara í að yfirfara það efni ég sem á til og fá sem mest úr þessu eina kvöldi á námskeiðinu.
Í þessari viku byrjum við mamma líka í Happy yoga í Sporthúsinu, fimm vikna námskeið, 2x í viku. Ég var að spá að taka bara heima yoga en það verður örugglega fínt að byrja pró á námskeiði og halda svo áfram heima í sumar. Mig grunar að þetta sé nákvæmlega það sem mig vantar og hefur alltaf verið á stefnuskránni.

Annars má þetta húsmæðragen líka alveg fara kikka in enda stefnir í frjókorna-season sem bætist ofan á þegar tilkomið ryk- og dýraofnæmi svo að vorhreingerningin verður massíf! Ég bætti um betur og keypti í dag lofthreinsitæki. Einhverja svaka græju sem á að vera málið í svona aðstæðum! Krossa putta!

Ég verð samt áfram með annan fótinn hjá Samskiptum svo að það er alltaf hægt að græja og redda ýmsu :)

XOXO


Engin ummæli:

Skrifa ummæli